Einn-teinn
Rekum tein í gegnum hnakk á hesti (hluturinn er á
milli)....við það...hleypur hann í burtu
Tveir-leir
Tveir apar í búri...annar tekur upp
hlutinn (í staðinn fyrir leir) og kastar í hinn
Þrír-kýr
Gömul belja að reyna að komast inn í fjósið en kemst ekki í gegnum
hurðina þar sem hluturinn liggur þversum á bakinu á
henni!
Fjórir-ljóri(gluggi)
Erum í Þjóðleikhúsinu, gluggi á sviðinu, dimmt inni og
skyndilega kemur hluturinn í gegnum gluggann, brýtur hann og
þýtur fram hjá okkur
Fimm-trimm
Fimm trimmarar í maraþon sem halda á viðarpramma og ofan á honum er
hluturinn
Sex-x
Utan um Hallgrímskirkju er rappara gullkeðja með X í endanum og
hangandi í x-inu er hluturinn
Sjö-mjöl
Bóndi sem ragast með mjölpoka og þegar hann hellir úr mjölpokanum
þá kemur hluturinn út
Átta-hátta
Stór, mikil og sveitt hjúkrunarkona með risastóra sprautu kemur og
ætlar að sprauta okkur í rassinn (við liggjum upp í rúmi á
sjúkrahúsi) en það sem kemur í veg fyrir að hún sprauti okkur í
rassinn er hluturinn.
Níu-stíur
Níu svöng svín í svínastíu. Við hendum hlutnum til þeirra og þau
hakka hann í sig
Tíu-kríur
Við erum stödd við tjörnina að gefa öndunum. Þá koma tíu kríur og
ætla að gogga í hausinn á okkur en við höldum hlutnum uppi til þess
að þær geti ekki goggað í okkur
Ellefu-ellefu
Ísland-Frakkland í fótbolta (ellefu menn í hvoru liði). Eiður Smári
fær sendingu fram og ætlar að sparka í boltann...en í staðinn fyrir
boltann...sparkar hann í hlutinn.
Tólf-hólf
Erum stödd á pósthúsi og erum að reyna að troða hlutnum inn í
pósthólf
Þrettán-brekán
Komum heim, þreytt og lúin,
hoppum upp í sófa (ábreiðan er yfir sófanum) en hoppum óvart á
hlutinn þar sem hann er undir ábreiðunni
Fjórtán-sjórán
Erum á sjóræningjaskipi....óvinir nálgast og við skjótum hlutnum úr
fallbyssunni á óvinina.
Fimmtán-fimmtán
Fimmtán ára gella að reyna að komast inn á skemmtistað. Hún
er beðin um skilríki og tekur þau upp úr vasanum...en í stað
skilríkja....kemur hluturinn.
Sextán-sextant
Kíkjum í sjónauka og skoðum sólina...þegar við kíkjum í sjónaukann
þá sjáum við hlutinn í stað sólarinnar.
Sautján-straujárn
Erum að strauja hlutinn
Átján-áþján
Erum að labba á
Laugaveginum....sjáum Tattoo stofu og kíkjum inn. Þar er verið að
setja húðflúr (mynd af hlutnum) á bringuna á manni sem situr í
stólnum.....
Nítján-bitjárn
Erum með gamlan hníf sem er orðinn bitlaus ... og við reynum að
skera hlutinn en það gengur illa!
Tuttugu-trukkur
Erum heima hjá okkur, trukkur kemur inn í garð.....á trukknum
er pallur og þar er hluturinn.
Tuttuguogeinn-
Tuttuguogeinn
Erum að spila “blackjack” í Las Vegas, erum með tvö spil á hendi,
biðjum um annað spil og hluturinn kemur í staðinn.
Reglur 1-21
1.
skilti með GFK (gagnrýndu ekki, fordæmdu eða
kvartaðu)
2.
rós (hrósa)
3.
langa manga (vektu ákafa löngun hjá
öðrum)
4.
sjúkrakassi með rauðum kross (sýndu einlægan
áhuga)
5.
síamsköttur, brosandi (brosa)
6.
nafnspjald (muna nöfn)
7.
heyrnartól (hlusta)
8.
míkrafónn (tala um áhugamál annarra)
9.
uppblásin súpermanndúkka (láta aðra finnast þeir
skipta máli)
10.
boxhanski (forðast deilur)
11.
virðulegur þjónn (segðu aldrei við neinn að hann
hafi rangt fyrir sér)
12.
leikhúsmiðar (á rúllu) sem stendur á “Viðurkenndu
það” (viðurkenndu mistök)
13.
hvolpur (vertu vingjarnlegur)
14.
skilti sem blikkar “JÁ” (fáðu hinn aðilann til að
segja já strax)
15.
tanngarður (lofaðu öðrum að tala)
16.
ljósapera (leyfðu öðrum að finna að hugmyndin sé
þeirra)
17.
gamlir strigaskór (setjum okkur í spor
annarra)
18.
Orðið ,,ÓSK” (sýndu óskum og hugm. annarra
skilning)
19.
Höfuð (höfðaðu til þess besta í öðrum)
20.
Óskarsstyttan (gerðu hugmyndir þínar
lifandi)
21.
Íþróttaálfurinn (hvettu aðra til dáða)
Ég fann
þetta í gömlu e-maili og ákvað að setja það hér inn
fyrst við vorum að tala svona mikið um þetta... kemur vonandi
einhverjum að gagni.
Kv. Kristín Þóra